Þorvaldur Halldórsson - ...Gerir Ekki Neitt (Notuð plata VG)
Þorvaldur Halldórsson - ...Gerir Ekki Neitt (Notuð plata VG)
1.500 kr
Ástand vínyls: Very Good (VG)
Ástand umslags: Very Good (VG)
Útgáfuland: Iceland
Útgáfuár: 1972
Útgefandi: SG-Hljómplötur
Tónlistartegund: Pop
Athugasemdir:
Upplýsingar um útgáfuna af Discogs:
Annað:
Þorvaldur Halldórsson varð landskunnur með sinni fyrstu hljómplötu, þar sem hann söng lagið Á sjó. Nokkrum mánuðum síðar kom lagið Hún er svo sæt, sem einnig varð mjög vinsœlt. Þetta lag er eftir Þorvald. Á nœstu plötu Þorvaldar, sem var tólf laga plata, var hins vegar texti eftir hann. Síðan hefur Þorvaldur gert nokkur lög og texta, sem vinsœl hafa orðið og meðal annars hlaut hann verðlaun fyrir lag sitt varðandi skiptingu okkar yfir í hœgri umferð fyrir fáeinum árum. Nú þekkir hvert mannsbarn Þorvald, því hann hefur sungið víða um land og oft komið fram í sjónvarpinu með hljómsveit Ingimars Eydal, sem hann söng og lék með um árabil. Nú hefur Þorvaldur hvílt sig á söng með hljómsveit, en hefur komið fram sem sjálfstœður skemmtikraftur síðustu mánuðina og hlotið mikið lof fyrir. Á hljómplötu þessari, sem er önnur tólf laga platan, sem Þorvaldur gerir fyrir SG-hljómplötur, má segja að finna megi hvert lagið öðru skemmtilegra, enda var lögð mikil vinna í að velja lög, sem hœfa hinni sérstœðu rödd Þorvaldar. Hér er lag eftir Kris Kristofferson, sem er eínn fremsti lagasmiður þeirra í Ameríku um þessar mundir. Þá er hér lag eftir Joe South, sem stendur Kris ekkert að baki og fyrsta lag plötunnar er eftir landa þeirra, Roger Miller, sem átti hvert lagið öðru betra á „vinsœldalistanum" fyrir fáum árum. Textahöfundar eru margir á þessari plötu og allir hafa áður gert texta á SG-hljómplötum. Þorvaldur sjálfur á einn texta, sem hann gerði við lag, sem hann heyrði á ferð sinni í Noregi á síðasta sumri. Höfum við nefnt plötuna eftir þessu fjöruga lagi. Eina íslenzka lagið er eftir Baldur Geirmundsson hljómsveitarstjóra (BG) á Ísafirði.
A1. Ljóshærð Skvísa
A2. Brenndar Brýr
A3. Ef þú Latan Ætlar Mig
A4. Ég Rölti Einn....
A5. Mín Kæra, Þína Skál
A6. Allt, Er ég átti Með þér
B1. Sértu Flekklaus Og Hreinn
B2. Stjarnan Mín
B3. (Það) Gerir Ekki Neitt
B4. Með þér
B5. Einfalt Og Eðlilegt
B6. Augun Blá
Strikanúmer og önnur auðkenni:
Data provided by Discogs