Afhendingarskilmálar

Þú hefur val um að sækja í verslun okkar í Hafnarfirði, fá sent með Dropp eða Póstinum.

Sjá opnunartíma í verslun okkar.

Plötubúðin.is er plötubúð sem leggur áherslu á að reka framúrskarandi netverslun með góðu úrvali og bjóða upp á fljótlegar og þægilegar afhendingarleiðir.

Við sendum pantanir með Dropp og Íslandspósti á fjölda afhendingarstaða um allt land.

Við sendum allar plötur í vönduðum umbúðum sem eru sérhannaðar til sendingar á vínyl og geisladiskum til að tryggja að þær skili sér heilar til viðskiptavina. 

Við leggjum metnað í að afgreiða pantanir hratt og örugglega og týnum þær til jafn óðum og þær berast.
Ef valið er að sækja í verslun er pöntun yfirleitt tilbúin innan 10 mínútna, á opnunartíma verslunar.
Pantanir sendar með Dropp fara samdægurs ef þær berast fyrir kl. 11:00. Þó eru undantekningar þar sem hægt er að afhenda Dropp pakka samdægurs sem berast eftir kl. 11:00 ef Dropp er seinna á ferðinni að sækja. (Dropp sækir yfirleitt milli kl. 11:00 - 12:00).
Pantanir sendar með Póstinum fara samdægurs ef þær berast fyrir kl. 12:00.
Þó eru undantekningar þar sem hægt er að afhenda Póstinum pakka samdægurs sem berast eftir kl. 12:00 ef Pósturinn er seinna á ferðinni að sækja. (Pósturinn sækir yfirleitt milli kl. 13:00 - 14:00).

Kaupandi hefur rétt á að hætta við pöntun ef svo ólíklega vill til að afgreiðsla tefst umfram það sem telst eðlilegt.

Sendingarkostnaður:

Það er alltaf frítt að sækja í verslun!

Við leggjum mikla áherslu á að bjóða upp á hagkvæman sendingarkostnað. Sendingarkostnaður er breytilegur eftir hvar á landinu þú ert. Þegar þú setur vörur í körfu og heldur áfram með pöntun munu mögulegar sendingarleiðir og sendingarkostnaður birtast eftir að þú hefur sett inn heimilisfang þitt.

Almennir frídagar:

Afgreiðsla netpantana fer ekki fram á almennum frídögum ef verslun okkar er lokuð en eru afgreiddar næsta virka dag.

Útlönd:

Við sendum erlendis til eftirtaldra landa:

Bandaríkin
Belgía
Bretland
Danmörk
Finnland
Frakkland
Hollan
Írland
Kanada
Kína
Noregur
Svíþjóð
Þýskaland


Ath. að við sendum frá Íslandi svo að mismunandi er eftir löndum hvort greiða þurfi aðflutningsgjöld af pökkum frá Íslandi.

Upplýsingar viðskiptavinar:
Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að gefa upp réttar upplýsingar svo pöntun komist til skila.

Pöntun fæst ekki afhent til viðskiptavinar:
Ef pöntun skilar sér ekki til viðskiptavinar vegna sinnuleysis af hans hálfu og endursendist til okkar fæst eingöngu andvirði vörunnar endurgreitt að frádregnum kostnaði þ.m.t. endursendingarkostnaður og geymslugjöld sem innheimt eru af þriðja aðila.