Skilmálar
Upplýsingar um seljanda:
Fyrsta upplag ehf.
Trönuhraun 6
220 Hafnarfjörður
Kennitala 500914-0920
VSK númer 117983
Sími: 559-9220
Við áskiljum okkur rétt til að hætta við pantanir, til dæmis vegna rangra verðupplýsinga eða að hætta að bjóða upp á vörur fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Greiðslur:
Við tökum við greiðslum með Visa og Mastercard í gegnum greiðslusíðu Verifone (færsluhirðir er Landsbankinn) sem er hröð og örugg greiðsluleið. Þá tökum við einnig við greiðslum í gegnum Netgíró og Pei og erum við stöðugt að leita eftir leiðum til að mæta þörfum viðskiptavina svo ekki hika við að senda okkur ábendingar.
Afhending:
Plötubúðin.is er plötubúð sem leggur áherslu á að reka framúrskarandi netverslun með góðu úrvali og bjóða upp á fljótlegar og þægilegar afhendingarleiðir.
Við erum einnig með verslun í Trönuhrauni 6 í Hafnarfirði. Sjá opnunartíma.
Við sendum pantanir með Íslandspósti og Dropp um allt land. Hægt er að velja úr yfir 100 afhendingarstöðum.
Við sendum allar plötur í vönduðum umbúðum sem eru sérhannaðar til sendingar á vínyl og geisladiskum til að tryggja að þær skili sér heilar til viðskiptavina.
Við leggjum metnað í að afgreiða pantanir hratt og örugglega og afgreiðum allar pantanir samdægurs. Pantanir sem berast fyrir kl. 12:00 virka daga eru sendar samdægurs með Dropp og Póstinum. Pantanir sóttar í verslun eru afgreiddar jafn óðum og þær berast á opnunartíma.
Pantanir sóttar í verslun má sækja um leið og pöntun er kláruð, á opnunartíma verslunar.
Kaupandi hefur rétt á að hætta við pöntun ef svo ólíklega vill til að afgreiðsla tefst umfram það sem telst eðlilegt.
Upplýsingar viðskiptavina:
Þegar viðskiptavinir ganga frá pöntun fyllir viðskiptavinur út upplýsingar með pöntuninni. Nafn, heimilisfang, netfang, sími o.þ.h. Við staðfestingu pöntunar samþykkir viðskiptavinur að við geymum viðkomandi upplýsingar í gagnagrunn okkar. Plötubúðin.is fer með allar slíkar upplýsingar sem trúnaðarmál og mun undir engum kringumstæðum selja þær til þriðja aðila.
Pöntun fæst ekki afhent til viðskiptavinar:
Ef pöntun skilar sér ekki til viðskiptavinar vegna sinnuleysis eða rangra upplýsinga af hans hálfu og endursendist til okkar fæst eingöngu andvirði vörunnar endurgreitt að frádregnum kostnaði þ.m.t. endursendingarkostnaður og geymslugjöld sem innheimt eru af þriðja aðila.
Vöruskil:
Hægt er að skila vörum innan 30 daga frá pöntun (gildir ekki um útsöluvörur). Eingöngu er tekið við vörum sem eru enn innsiglaðar og óskemmdar.
Viðskiptavinur þarf að greiða sendingarkostnað eða koma til okkar með vöruna. Gefin er út inneignarnóta fyrir vöruskilum. Aðeins er gefin út inneign fyrir andvirði vöru, sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur við vöruskil.
Inneignarnótur og gjafakort:
Inneignarnótur og gjafakort eru ekkert annað en peningar. Við lítum ekki svo á að það sé gjaldmiðill sem renni út. Á meðan verslunin starfar tökum við að sjálfsögðu við útgefnum inneignarnótum og gjafakortum. Glötuð inneignarnóta/gjafakort er þó á sem glatað fé.
Kvartanir / Gallaðar vörur:
Ef þú fékkst gallaða vöru þá hvetjum við þig til að hafa samband strax og við leysum málið í sameiningu. Ef við getum ekki útvegað nýtt eintak af sömu vöru þá endurgreiðum við pöntunina að fullu, ásamt sendingarkostnaði þegar um gallaða vöru er að ræða.
Trúnaður (Öryggisskilmálar):
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing:
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi ágreiningur um hann skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Aðrar spurningar:
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir þá ekki hika við að hafa samband í gegnum tölvupóst á verslun (at) plotubudin.is og við svörum þér eins fljótt og auðið er.