Svala Nielsen - Fjórtán Sönglög Eftir Fjórtán Tónskáld (Notuð plata VG)
Svala Nielsen - Fjórtán Sönglög Eftir Fjórtán Tónskáld (Notuð plata VG)
2.500 kr
Ástand vínyls: Very Good (VG)
Ástand umslags: Very Good Plus (VG+)
Útgáfuland: Iceland
Útgáfuár: 1976
Útgefandi: SG-Hljómplötur
Tónlistartegund: Classical, Folk World & Country
Athugasemdir:
Upplýsingar um útgáfuna af Discogs:
Annað:
Enn gefa SG-hljómplötur út plötu með íslenzkum einsöngvara og er plöturnar orðnar sjö í þessum útgáfuflokki. Svala Nielsen er landskunn söngkona. Fyrstu kennarar hennar voru Guðmundur Jónsson, Sigurður Birkis og Kristinn Hallsson. Að loknu námi á Íslandi hélt Svala Nielsen utan og nam söng á Ítalíu og í Þýskalandi. Eftir heimkomuna sótti hún tíma til Maríu Markan. Svölu hafa verið falin mörg vandasöm hlutverk í óperum þeim og óperettum, sem Þjóðleikhúsið hefur fært upp á undanförnum árum. Einnig hefur hún komið fram, sem einsöngvari með mörgum íslenzkum kórum, m.a. farið tvisvar utan með Karlakór Reykjavíkur, en Svölu er einmitt að finna sem einsöngvara á hljómplötu, sem kórinn gerði fyrir SG-hljómplötur, þar sem tekin eru fyrir lög Árna Thorsteinssonar. Svala Nielsen hefur komið fram í íslenzka sjónvarpinu og síðast en ekki sízt í útvarpinu, þar sem hún hefur sungið marg oft, enda er hún afbragðs túlkandi á íslenzk einsöngslög eins og heyra má á þessari plötu hennar. Guðrún Kristinsdóttir leikur undir hjá Svölu af sinni alkunnu snilld.
A1. Minning
A2. Lindin
A3. Þú eina hjartans yndið mitt
A4. Hvert örstutt spor
A5. Í dag skein sól
A6. Amma raular í rökkrinu
A7. Mánaskin
B1. Viltu fá minn vin að sjá
B2. Draumalandið
B3. Sólskríkjan
B4. Þjóðvísa
B5. Nú er sól og vor
B6. Mamma mín
B7. Linda
Strikanúmer og önnur auðkenni:
Data provided by Discogs