Ólafur Þ. Jónsson - Fjórtán Sönglög Eftir Fjórtán Íslensk Tónskáld (Notuð plata VG)
Ólafur Þ. Jónsson - Fjórtán Sönglög Eftir Fjórtán Íslensk Tónskáld (Notuð plata VG)
1.900 kr
Ástand vínyls: Very Good (VG)
Ástand umslags: Very Good (VG)
Útgáfuland: Iceland
Útgáfuár: 1973
Útgefandi: SG-Hljómplötur
Tónlistartegund: Classical
Athugasemdir:
Upplýsingar um útgáfuna af Discogs:
Annað:
Ólafur Þ. Jónsson fæddist í Reykjavík 5. marz 1936. Hann starfar um þessar mundir við óperuna í Mainz í Þýskalandi. En erlendis hefur hann starfað í níu ár og hefur ætíð hlotið hina beztu dóma fyrir hinn bjarta og fallega söng sinn hvort heldur er í óperuhlutverkum eða á hljómleikasviðinu. Þó að útlendingar hafi fyrst og fremst orðið þeirrar ánægju aðnjótandi að hlíða á Ólaf Þ. Jónsson syngja þá hefur hann heimsótt fósturjörðina í fríum sínum og ýmist komið fram í sérstökum dagskrám í útvarpi eða sjónvarpi, þannig að íslendingar hafa að nokkru leyti getað fylgst með framförum þessa ágæta söngvara. En síðasta orlof sitt hér á landi notaði Ólafur til að æfa og hljóðrita þau lög, sem finna má á þessari hljómplötu. Þar hefur stutt hann í lagavali og listrænum undirleikeik nafni hans Ólafur Vignir Albertsson. Áður en Ólafur Þ. Jónsson hóf störf erlendis hafði hann verið við nám hér heima hjá þeim Sigurði Skagfield, Kristni Hallssyni og Sigurði V. Demetz. En við nám erlendis var hann síðan í fimm ár. Fyrst í Salzburg og síðan í Vínarborg. Áður en hann fór utan lauk hann leiklistarnámi við Þjóðleikhúsið og starfaði þar sem leikari og söngvari áður en hann hélt utan. Þetta er þriðja hljómplatan sem SG-hljómplötur gefa út með íslenzkum einsöngvurum. Áður hafa komið út í þessum útgáfuflokki plötur með þeim Magnúsi Jónssyni og Guðrúnu Á. Simonar. Í undirbúningi eru plötur með fleiri söngvurum og munu næstu tvœr plötur að öllum líkindum verða með hinum ágœtu og kunnu söngvurum Sigríði Ellu Magnúsdóttur og Sigurði Björnssyni.
A1. Augun Bláu
A2. Fjólan
A3. Fallin Er Frá
A4. Sumar
A5. Draumur Hjarðsveinsins
A6. Litla Skáld
A7. Sprettur
B1. Bikarinn
B2. Bráðum Kemur Betri Tíð
B3. Skammdegisvísa
B4. Vorvísa
B5. Ef Engill Ég Væri
B6. Til Skýsins
B7. Ferðalok
Strikanúmer og önnur auðkenni:
Data provided by Discogs