Hörður Torfason - Án Þín (Notuð plata VG+)
Hörður Torfason - Án Þín (Notuð plata VG+)
2.500 kr
Ástand vínyls: Very Good Plus (VG+)
Ástand umslags: Very Good (VG)
Útgáfuland: Iceland
Útgáfuár: 1971
Útgefandi: SG-Hljómplötur
Tónlistartegund: Folk World & Country
Athugasemdir:
Upplýsingar um útgáfuna af Discogs:
Annað:
Aftur er Hörður Torfason á ferðinni með tólf laga plötu. þar sem öll lögin eru eftir hann sjálfan. Fyrri plata hans, sem kom út fyrir ári, vakti slíka athygli, að einstakt má telja. Varð Hörður landskunnur lagahöfundur og túlkandi á nokkrum vikum og hafa vinsældir hans ekki dvínað. Með Þessari plötu stækkar aðdáendahópur hans enn, því hér eru jafnvel betri lög en á fyrri plötunni og þá hefur Hörður aftur valið mörg afburða góð ljóð til að semja lög við. Má þar fyrst telja titillag plötunnar Án þín eftir Pál Ólafsson, en það er úr ljóðabók hans Fundin ljóð, sem kom út á síðasta ári. Við þetta hugljúfa ljóð, sem er um hundrað ára gamalt, hefur Hörður gert einstaklega fallegt lag, sem hann flytur hér með undirleik píanós. Önnur ljóð, sem vekja mætti athygli á eru hið kunna ljóð Vilhjálms frá Skáholti, Jesú Kristur og ég og hið sérstæða ljóð Laxness í Áfanga að ógleymdum perlum Káins, Ævintýri og Gamalt og gleymt. Og þá á Hörður sjálfur tvö ljóð á plötunni, sem standa fyrir sínu. Ung stúlka með fallega rödd, Helga Markúsdóttir, syngur með Herði í einu lagi og þrír drengir í öðrum tveimur. Undirleikur er ekki margbrotinn, sem gerir þessa plötu Harðar, eins og hina fyrri ólíka öllum öðrum íslenzkum plötum. Því það er fyrst og fremst einfaldleikinn, sem gerir hana hrífandi. — Svavar Gests
A1. Án Þín
A2. Kongurinn Á Svörtu Eyjum
A3. Óráð
A4. Aðeins Ætlað Þér
A5. Ástarljóð
A6. Úr Daglega Lífinu
B1. Hlustaðu Á Mitt Hjarta
B2. Í Áfánga
B3. Jesú Kristur Og Ég
B4. Helsprengjan
B5. Ævintýri
B6. Gamalt Og Gleymt
Strikanúmer og önnur auðkenni:
Data provided by Discogs