Record Store Day 2025

12. apríl 2025 er alþjóðlegi dagur plötubúðanna (e. Record Store Day).

Við tökum að sjálfsögðu þátt eins og síðustu ár og verðum með um 100 RSD titla í boði. Að auki ætlum við að vera með ansi safaríka áfyllingu á notaðar plötur sem verður ekki hægt að versla í netsölu fyrr en eftir lokun á laugardag.
Ekki láta þetta framhjá þér fara og komdu í verslun okkar í Trönuhrauni 6. Opnunartíminn verður lengri en aðra laugardaga eða frá 10:00 - 17:00.

Fyrstur kemur, fyrstur fær. Ekki er hægt að taka frá.

Óseldar RSD útgáfur fara svo í netsölu í lok dags.