Kardemommubærinn LP

Kardemommubærinn LP

Kardemommubærinn LP

4.199 kr
Eintök til á lager: 1

Útgáfuár: 2021

Á 70 ára afmæli Þjóðleikhússins var ákveðið að setja upp Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner í sjötta sinn og hér er tónlistin komin í flutningi margs okkar besta tónlistarfólks og ástsælustu leikara. Karl Olgeirsson tónlistarstjóri setur tónlistina í sjóðandi brassbandsgrúv ásamt sjö manna hljómsveit og Bastían bæjarfógeti (Örn Árnason) segir söguna á milli laga. Virkilega skemmtileg útgáfa af þessu klassíska leikverki sem þjóðin hefur elskað síðan það var fyrst sett á fjalirnar 1960.

Hljómsveitina skipa auk Karls sem spilar á píanó og harmonikku: Samúel J. Samúelsson, Snorri Sigurðar og Haukur Gröndal á lúðra, Stebbi Magg á banjó, Birgir Bragason á kontrabassa og nýstirnið Lóa Bergsveins á trommur og slagverk.

Leikarar: Örn Árnason, Hallgrímur Ólafsson, Sveppi, Oddur Júlíusson, Ólafía Hrönn, Heiða Steindórs, Þórhallur Sigurðsson, Sigga Eyrún, Snæfríður Ingvarsdóttir, Hildur Vala Baldursdóttir, Bjarni Snæbjörnsson og margir fleiri